Skipulegðu herferð
Herferðaefni ECDC fyrir Evrópska vitundarvakningardaginn fyrir sýklalyf miðar að því að styðja við starf innlendra heilbrigðisyfirvalda í Evrópu við að standa að almennri og mótsagnarlausri herferð í Evrópu um skynsamlega notkun sýklalyfja.
Verkfærakistan býður upp á sniðmát fyrir herferðarefni, sem laga má að innlendri notkun, og ráðgjöf um hvernig skipuleggjendur herferðarinnar geta náð athygli í því skyni að efla rétta og skynsamlega notkun sýklalyfja.
Verkfærakista - heilsugæslulækna
Verkfærasettið inniheldur sniðmát og helstu skilaboð fyrir heilbrigðisstarfsmenn, hugmyndir að vitundarvekjandi aðgerðum, og leiðbeinandi tækni til að koma skilaboðunum til bæði heimilislækna og sjúklinga.
Verkfærakista - sjálfskömmtun sýklalyfja
Verkfærasettið inniheldur sniðmát og helstu skilaboð með áherslu á sýklalyfjanotkun án læknisráðs, hugmyndir að vitundarvekjandi aðgerðum, og leiðbeinandi tækni til að koma skilaboðum til almennings.
Verkfæri fyrir starfsfólk sjúkrahúsa og annarrar heilbrigðisþjónustu
Markmiðið með þessum verkfærum er að styðja við viðleitni sem hvetur til skynsamlegrar notkunar á sýklalyfjum í sjúkrahúsum og öðrum heilsustofnunum með dreifingu á kennslu- og kynningarefni sem byggir á gagnreyndum upplýsingum.
Vörumerki
Merki Evrópudags vitundarvakningar um sýklalyf var hannað til notkunar í öllu efni sem tengist deginum í Evrópu og til að skapa samræmt útlit í öllu efni sem gefið er út af því tilefni.